Mörkinni 3 - 108 Reykjavík - Sími 568 7477 - Fax 588 8570

Nýjustu fréttir ! • Veist þú af þessu ? • Bútasaumur • Thimbleberries klúbbur • Netklúbbur • Virku húsgögn • Fataefni • mottur • Afsláttarkort • Starfsmenn Virku og opnun • English

Bútasaums námskeið !!  Gjafabréf !!

    Námskeiðið á Hótel Örk 2011, var haldið helgina 7-9 okt.

Myndir frá Örkinni 2011

NÁNARI UPPL: ÝTIÐ HÉR !

 Rúmteppa- námskeiðið.  

Á  þessu námskeiði er kennt að gera rúmteppi frá A-Ö, en einnig er hægt að taka eitthvað annað fyrir.  Erum byrjaðar að bóka á næsta námskeið sem byrjar þann 18/1. 

NÁNAR
Ýtið hér !

 

 

 

 


Teppanámskeiðið vinsæla byrjar miðvikudaginn 18/1 og er óðum að verða fullbókað, sjá nánar með því að ýta
hér.

Erum einnig að skrá á aplikeringarnámskeið sem byrjar fimmtudaginn 19/1 og er tvö kvöld (19+26/1) frá kl.18-21,00 en það kostar 9000.-

 Vetraropnunartími:
Virka daga 10-18
Opið á laugadögum frá 11-15

Verkefnið sem unnið var á Örkinni 2011.

Stuttar fréttir !!


5/12

Opið hús í bútasaumsdeildinni á fimmtudaginn næsta 8/12 kl.18,00!
Guðfinna býður uppá sýnikennslu og svo væri frábært ef þið kæmuð með verkefni sem þið hafið verið gera, til að sýna okkur hinum. Fullt af nýjum vörum, kaffi, piparkökur og jólastemming.

Erum einnig að byrja að bóka á næsta teppanámskeið sem byrjar í janúar, sjá hér til hliðar á síðunni.
 


21/9

Næstu daga munum við setja inn myndir af ýmsum nýjum efnum, bara svona til að gefa ykkur sýnishorn af því hvað hefur verið að koma. Linkur fyrir ný fataefni hér. 
Linkur fyrir bútasauminn hér.

21/5

Marti Michell kemur í heimsókn!
Þessi þekkta, vinsæla bútasaumskona ætlar að koma til okkar í júní. Fimmtud. 23/6 kl.18,00 ætlar hún að vera með sýnikennslu hjá okkur í búðinni. Hún er þekkt fyrir góðar og skemmtilegar leiðbeiningar í bútasaumnum, svo endilega notið tækifærið og skráið ykkur sem fyrst. Sýnikennslan kostar 1000,- sem þið fáið kvittun fyrir og getið síðan notað sem inneign uppí vörurnar hennar! En ganga þarf frá greiðslum fyrirfram svo við áttum okkur á fjöldanum. Missið ekki af þessu!   


29/3

OPIÐ HÚS!!
 Fimmtudaginn næstkomandi 31/3 ætlum við að bjóða bútasaumskonum að koma til okkar milli kl.17-20. Við ætlum að bjóða uppá sýnikennslu, kaffi og kex ;-).
Einnig ætlum við að fara yfir það sem framundan er, en t.d kemur Marti Mitchell til okkar í sumar og við erum byrjaðar að bóka á helgarnámskeiðið á Hótel Örk þann 7-9 okt.
Endilega notið tækifærið og kíkið á öll nýju efnin í leiðinni.
Hlökkum til að sjá ykkur!



5/1

Við erum byrjuð að skrá á teppanámskeið sem byrjar þann 26/1 sjá nánar hér til hliðar.
Vorum að fá stóra sendingu í bútasauminn af batik efnum, fallegum barnaefnum og breiðum bakefnum. Einnig ýmsar bækur m.a. applikeringabókina vinsælu eftir William Morris nýja bókin frá honum er svo væntanleg.


13/10

Vorum að setja myndir af nýja Thimbleberries klúbbverkefninu fyrir 2011 inná síðuna sjá hér 

Erum búnar að fá fullt af íslensku prjóna-ullinni 2 gráa liti, grænt, blátt, rautt, brúnt, svart og ljóst. Fengum munstruð viscose jersey mikið úrval, tilvalið í kjóla ofl. Ný Memory efni 4 litir doppótt, tilvalið í skyrtur, pils ofl. Einnig nokkra liti í munstruðu velúr og nokkur flott köflótt efni í blússur og skyrtur sem er hægt að snúa við (smáköflóttara öðru megin).      

26/8

Nú erum við með örfá sæti laus á teppanámskeiðið sem byrjar hjá okkur 14 september og verður á þriðjudagskvöldum. Sjáið nánar hér til hliðar á síðunni. 

Erum að fá fullt af nýjum vörum í fataefnadeildina og enn fleira á næstu vikum! 



3/2

Nýjar vörur:
Prjónaefnin vinsælu komin aftur í gráum litum, rauðum, bláum og svörtum.
Overlock tvinni á góðu verði, svört teygjanleg blúnduefni, fullt af öðrum vinsælum efnum  sem seldust upp fyrir jól, komin aftur.

Saumagínur á frábæru verði 55,500,-


26/1

Nýjar myndir úr búðinni..
glæsilegar blúndur og skraut í miklu úrvali, hér sést aðeins brot af því, ýtið á myndirnar til að stækka.

mikið úrval af fallegum gjafavörum
 



mikið úrval af íþrótta-og öðrum bómullarefnum


og einnig mikið úrval af flottum fataefnum!

 

Myndirnar hér fyrir neðan, getið þið stækkað með því að klikka á þær.
 




Þessi fallegu teppi hér fyrir neðan er hægt að fá í tilbúnum pakkningum og einnig mörg fleiri, tilvalið í gjöf fyrir bútasaumskonuna.

 

 
 



Hægt er að kaupa tilbúnar pakkningar í þetta gullfallega jólatrésteppi.




Þessar frábæru bútasaumstöskur eigum við til í nokkrum litum!! 
bútasaumstaska.jan.04.jpg (1083839 bytes)

Ýtið á myndina til að sjá hana stærri !




Munið gjafabréfin okkar, tilvalin gjöf !!

Myndir úr búðinni..
 









 










   Hit Counter


Póstfang vefstjóra er dagbjorthjávirka.is