|
Námskeiðið á Hótel Örk 2011, var haldið helgina 7-9 okt.
Myndir
frá Örkinni 2011
NÁNARI UPPL: ÝTIÐ HÉR !

Rúmteppa-
námskeiðið.
Á þessu námskeiði er kennt að gera rúmteppi frá A-Ö, en
einnig er hægt að taka eitthvað annað fyrir. Erum byrjaðar
að bóka á næsta námskeið sem byrjar þann 18/1.
NÁNAR
Ýtið
hér !
|
Teppanámskeiðið vinsæla byrjar miðvikudaginn 18/1 og er
óðum að verða fullbókað, sjá nánar með því að ýta hér.
Erum einnig að skrá á aplikeringarnámskeið sem byrjar
fimmtudaginn 19/1 og er tvö kvöld (19+26/1) frá kl.18-21,00 en það
kostar 9000.-
Vetraropnunartími:
Virka daga 10-18
Opið á laugadögum frá 11-15
Verkefnið sem unnið var á Örkinni
2011.
Stuttar
fréttir !!

5/12 Opið
hús í bútasaumsdeildinni á fimmtudaginn næsta 8/12 kl.18,00!
Guðfinna býður uppá
sýnikennslu og svo væri frábært ef þið kæmuð með verkefni sem
þið hafið verið gera, til að sýna okkur hinum. Fullt af nýjum
vörum, kaffi, piparkökur og jólastemming.
Erum einnig að byrja að bóka á næsta teppanámskeið sem byrjar í
janúar, sjá hér til hliðar á síðunni.

21/9 Næstu
daga munum við setja inn myndir af ýmsum nýjum efnum, bara svona til
að gefa ykkur sýnishorn af því hvað hefur verið að koma. Linkur
fyrir ný fataefni hér.
Linkur fyrir bútasauminn hér.

21/5 Marti
Michell kemur í heimsókn!
Þessi þekkta, vinsæla
bútasaumskona ætlar að koma til okkar í júní. Fimmtud. 23/6
kl.18,00 ætlar hún að vera með sýnikennslu hjá okkur í búðinni.
Hún er þekkt fyrir góðar og skemmtilegar leiðbeiningar í
bútasaumnum, svo endilega notið tækifærið og skráið ykkur sem
fyrst. Sýnikennslan kostar 1000,- sem þið fáið kvittun fyrir og
getið síðan notað sem inneign uppí vörurnar hennar! En ganga þarf
frá greiðslum fyrirfram svo við áttum okkur á fjöldanum. Missið
ekki af þessu!

29/3 OPIÐ
HÚS!!
Fimmtudaginn næstkomandi 31/3 ætlum við að bjóða
bútasaumskonum að koma til okkar milli kl.17-20. Við ætlum að
bjóða uppá sýnikennslu, kaffi og kex ;-).
Einnig ætlum við að fara yfir það sem framundan er, en t.d kemur
Marti Mitchell til okkar í sumar og við erum byrjaðar að bóka á
helgarnámskeiðið á Hótel Örk þann 7-9 okt.
Endilega notið tækifærið og kíkið á öll nýju efnin í
leiðinni.
Hlökkum til að sjá ykkur!

5/1 Við
erum byrjuð að skrá á teppanámskeið sem byrjar þann 26/1 sjá
nánar hér til hliðar.
Vorum
að fá stóra sendingu í bútasauminn af batik efnum, fallegum
barnaefnum og breiðum bakefnum. Einnig ýmsar bækur m.a.
applikeringabókina vinsælu eftir William Morris nýja bókin frá
honum er svo væntanleg.
 13/10 Vorum
að setja myndir af nýja Thimbleberries klúbbverkefninu fyrir 2011
inná síðuna sjá hér
Erum búnar að fá fullt af íslensku prjóna-ullinni 2 gráa liti,
grænt, blátt, rautt, brúnt, svart og ljóst. Fengum munstruð viscose
jersey mikið úrval, tilvalið í kjóla ofl. Ný Memory efni 4 litir
doppótt, tilvalið í skyrtur, pils ofl. Einnig nokkra liti í
munstruðu velúr og nokkur flott köflótt efni í blússur og skyrtur
sem er hægt að snúa við (smáköflóttara öðru
megin).
 26/8 Nú
erum við með örfá sæti laus á teppanámskeiðið sem byrjar hjá
okkur 14 september og verður á þriðjudagskvöldum. Sjáið nánar
hér til hliðar á síðunni.
Erum að fá fullt af nýjum vörum í fataefnadeildina og enn fleira á
næstu vikum!

3/2
Nýjar vörur:
Prjónaefnin vinsælu komin aftur í gráum litum, rauðum, bláum og svörtum.
Overlock tvinni á góðu verði, svört teygjanleg blúnduefni, fullt af
öðrum vinsælum efnum sem seldust upp fyrir jól, komin aftur.
Saumagínur á frábæru verði 55,500,-


26/1
Nýjar myndir úr búðinni..
glæsilegar blúndur og skraut í miklu úrvali, hér sést aðeins brot af
því, ýtið á myndirnar til að stækka.

mikið úrval af fallegum gjafavörum

mikið úrval af íþrótta-og öðrum bómullarefnum

og einnig mikið úrval af flottum fataefnum!

Myndirnar
hér fyrir neðan, getið þið stækkað með því að klikka á þær.

Þessi fallegu teppi hér fyrir neðan er
hægt að fá í tilbúnum pakkningum og einnig mörg fleiri, tilvalið í gjöf
fyrir bútasaumskonuna.

Hægt er að kaupa tilbúnar pakkningar í
þetta gullfallega jólatrésteppi.


Þessar
frábæru bútasaumstöskur eigum við til í nokkrum litum!!

Ýtið á myndina til
að sjá hana stærri !
|
Munið
gjafabréfin okkar, tilvalin gjöf !!
|