|
|
|
Fundir eru haldnir
einu sinni í mánuði yfir vetrartímann, en á sumrin höfum við tekið okkur
smá frí til að sleikja sólina, og safna orku fyrir veturinn. Á fundunum erum við
stundum með
sýnikennslu, vörur á tilboði og ýmislegt fleira sem til fellur hverju
sinni. Klúbbkonur hafa verið mjög duglegar við það að koma með teppi og
önnur bútasaumsverkefni sem þær hafa verið að gera og sýnt á fundunum.
Það er alltaf gaman að sjá hvað aðrir eru að gera, bæði til þess að
fá hugmyndir nú eða bara til þess að gleðja augað. Á hverjum fundi
er happadrætti, fundargestir setja nafnið sitt í pott sem úr eru dregin tvö
nöfn á hverjum fundi, og fá þær heppnu bók eða snið frá
Thimbleberries í verðlaun. Ef þú skráir þig í klúbbinn, færð þú fréttabréf einu sinni í mánuði, þar sem við tilkynnum dagsetningu næsta fundar, hvaða vörur verða á tilboði eða hvað verður tekið fyrir í sýnikennslu, því það er alltaf eitthvað í gangi. Á fundinum átt þú svo kost á því að njóta þess sem uppá er boðið, s.s. vörur á tilboðsverði og sýnikennslu. Það kostar ekkert að vera með í klúbbnum, en til að teljast fullgildur meðlimur verða þáttakendur að kaupa mánaðarverkefnið, sem er sérvalið af Lynette Jensen og hennar fólki. Ef verkefnið er ekki sótt, þá fellur viðkomandi sjálfkrafa útaf listanum hjá okkur og fær ekki tilkynningu um næsta fund. Greitt er fyrir hvert verkefni fyrir sig en þau verða á 3300,-( eða u.þ.b. endanleg staðfesting á verðinu kemur eftir að við höfum fengið efnin), en við ákváðum að deila þessu frekar jafnt yfir árið eins og í fyrra, en athugið að sumarverkefnin verða kannski afhent á fundum um vorið eða haustið og þá erum við sennilega að afhenda 2.pakkn. í einu sem verður þá tvöfaldur kostnaður Þú getur skráð þig í Thimbleberries klúbbinn með því að smella hér og senda okkur póst, hringja til okkar í síma 568 7477 nú eða koma til okkar í Mörkina 3. Munið að tilgreina hvorn litinn þið viljið Northern Lights eða Southern Skies sjá nánar hér fyrir neðan. Efst
á síðu
|