|
Það sem þú
veist kannski ekki að sé til !!
Hjá okkur í Virku
fæst ýmislegt sem margir vita ekkert af, og jafnvel vita ekki að sé
búið til !! Það er nefnilega til svo margt til að auðvelda alla
hluti, og hér ætlum við að reyna að nefna þessar vörur sem fást
hjá okkur !!
-
Fyrir
brjóstahaldara:
Ef hann er of þröngur þá erum við með lengingu á hann.
Ef spöngin er brotin, þá erum við með spöng í hann.
Ef það má ekki sást í teygju á honum, þá eigum við glæra
teygju og glæra hlíra líka.
Svo ef það brotna spennurnar í bikiní-brjóstahaldaranum, þá erum
við með þær.
Og ef þú ætlar að sauma brjóstarhaldara, þá erum við með
teygjublúndur-og efni, sem sagt allt sem til þarf !
-
Sokkabönd eru
til hjá okkur.
-
Spangir til að halda flegnum kjólum uppi.
-
Spangir í
kríólínið.
-
Klemmur á pollabuxurnar og á axlarböndin, eigum allt til að búa til
axlabönd.
-
Straugjanlegar bætur í
metravís.
-
Endurskinsborðar til að setja á föt.
-
Einnota
svitapúða.
Fyrir
bútasauminn :
-
"Sprey"lím sem er notað á vattið til halda því föstu
við efnið, til að sleppa við þræðingu á bútasaumsstykkjum.
-
Þykkt
straustykki til að hafa á borði við hliðina á saumavélinni,
þægilegt þegar það þarf altaf að vera að strauja litla búta.
-
Vax
til að setja á tvinna, sem applikerað er með, til þess að hann
flækist minna, en Robyn Pandolph mælti mjög með þessu.
-
Skurðarmotta
með straumottu hinumegin !
-
Efni
til að hreinsa straujárn.
-
Stórt
stækkunargler með ljósi, til að hengja um hálsinn.Tilvalið
þegar verið er að vinna í höndum.
-
Gúmmíhringur
c.a 20.cm í ummál, til að raða tvinnaspólunum í og þær
haldast fastar !
Ofl.ofl...
Efst
á síðu |